rólegur dagur

Jæja þá er einn dagurinn enn á enda. Hef nú gert frekar lítið í dag, nema þessi venjulegu húsverk. Við að vísu leigðum íbúðina sem við erum með niðri. Það kom fólk frá Porsgrund og var hjá okkur í eina nótt. Við leigjum til túrista og er það mjög spennandi. Annars var þetta að fara í bæinn og versla í matinn, en við borðuðum reykt folaldakjöt,mmmmmmmmmmJoyful sem ég keypti á Íslandi þegar ég var þar í júní.

Við fórum síðan í heimsókn í kvöld, ég, Tryggvi og Bjarki. Fórum til vinafólks okkar í Akrehamn, sem er um 15 mín. keyrsla frá okkur. Þar fengum við íslenskan lakkrís, þau voru nefninlega að koma frá Íslandi.

Jæja gott fólk nóg í bili.........Anna María


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hei... það er ekkert verið að láta mann vita að þú sért komin með blogg?

ég er búin að vera frekar léleg við að blogga enda var ég bara að fá netið í dag!

knús frá mér

Elísa (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 22:43

2 identicon

Bíddu nú róleg á svo ekkert að blogga meira þetta sumarið ?

Vala (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband