íbúð í Noregi

Nú er ég búin að leggja út myndir af íbúð sem við erum með í kjallaranum hjá okkur. Þessi íbúð er til leigu, bæði í daga og vikur. Byrjuðum í sumar að leigja út til túrista. Þar sem við búum er mjög fallegt. Þetta liggur mjög vel í leið fyrir þá sérstaklega sem koma með ferjunni frá Íslandi til Bergen. Við liggjum ca. 4 tíma keyrslu sunnan við Bergen. Skudeneshavn var kosin sumarbær í Noregi sumarið 2004. Hér er mjög fallega varðveittur gamli bær. Þröngar götur, hvít hús. Bærinn byggðist upp í kringum síldina og er þetta einn best varðveitti bæjarhluti í Noregi.

Þeir sem hafa áhuga og eru á ferðinni og vantar húsnæði þá er bara að hafa samband hér á blogginu.

kv. Anna María


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: xena

Góð auglýsing hjá þér mútta þú verður að minnast á þetta annað slagið!

xena, 18.8.2007 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband